Keppnisskilmálar
Liðakeppni GKG 2026 — leikform, skráning, stigakerfi og lokamót.
Um mótið
Liðakeppni GKG er innanfélagsmót — einungis fullgildir meðlimir GKG geta tekið þátt og hver leikmaður má eingöngu keppa fyrir eitt lið af þeim sem taka þátt í mótinu. Tilkynna skal samsetningu liðs við skráningu og er hún óbreytanleg eftir að liðakeppnin hefst.
Komi til þess að leikmaður þurfi að segja sig frá keppni vegna meiðsla, veikinda eða annarra ófyrirséðra orsaka eftir að mót hefst, getur mótsstjórn heimilað að liðsmanni sé skipt út fyrir nýjan liðsmann en mótsstjórn gæti farið fram á læknisvottorð eða önnur gögn til að styðja ákvarðanatökuna.
Keppnisréttur og skráning
Skráningu í mótið 2026 lýkur 20. apríl.
- Þau lið frá fyrra ári sem lentu ekki í neðsta sæti í sínum riðli hafa forgangsrétt í mótið.
- Lið telst frá fyrra ári ef í því eru 5 eða fleiri liðsmenn frá því ári.
- Ef fleiri en 24 lið sækja um munu liðin sem lenda í neðsta sæti í sínum riðli þurfa að heyja umspil við ný lið til að eiga möguleika á að tryggja sig inn í næsta keppnistímabil. Tapi þau sætinu flokkast þau sem ný lið eftir það.
- Sæki færri en fjögur ný lið skal varpa hlutkesti hvaða neðstu lið frá árinu áður leiki 18 holu umspil við ný lið.
- Sæki fleiri en fjögur ný lið um þátttöku í mótinu skal dregið um hvaða fjögur ný lið heyji umspil við fjögur neðstu liðin úr keppninni árið áður.
- Mótsstjórn er heimilt að breyta ofangreindu leikskipulagi ef lið eru 16 eða færri.
- Skila þarf inn nafni liðs í skráningunni og það þarf að vera fullskipað tímanlega fyrir keppni svo það fari í réttan forgjafarhóp.
Skráning í mótið fer fram hjá ulfar@gkg.is. Það sem þarf að koma fram í póstinum:
- Nafn liðs
- Leikmenn — fullt nafn + aðildarnúmer + forgjöf allra leikmanna (lágmark 6, hámark 8)
- Nafn, netfang og símanúmer liðsstjóra
Þátttökugjald: 28.000 kr. á hvert lið. Gjaldið rennur til styrktar íþróttastarfi GKG.
Þátttökugjaldið greiðist um leið og lið hefur fengið staðfestingu á þátttöku.
Reikningsnúmer GKG: 133-26-200843 · kt. 650394-2089
Áður en keppnin hefst funda liðsstjórar með mótsstjóra í íþróttamiðstöðinni þar sem farið verður yfir leikreglur mótsins.
Leikfyrirkomulag
Keppt er í fjórum riðlum og raðað er í riðla eftir meðalforgjöf liða þar sem notast er við forgjafir allra leikmanna við útreikning á liðsforgjöf. Þau lið sem verða í tveimur efstu sætunum í hverjum riðli í riðlahluta keppninnar halda áfram og fara í 8 liða úrslit (sjá fyrirkomulag á síðu úrslita). Þau lið sem vinna sína leiki í 8 liða úrslitunum fara í undanúrslit, og í framhaldinu verður keppt um gull, silfur og brons á Lokamóti keppnishalds GKG þann 5. september 2026.
Kylfingar þeirra liða sem ekki keppa um verðlaunasæti hafa þátttökurétt í punktamóti sem haldið verður sama dag og úrslitin (að hámarki 100 keppendur).
Það kvöld verður haldið sameiginlegt lokahóf fyrir þátttakendur liðakeppninnar ásamt því að veitt verða verðlaun fyrir VITA — mánudagsmótaröðina og Holukeppni GKG.
Í hverri umferð er leikin holukeppni:
- Einn fjórleikur með forgjöf — báðir kylfingar leika sínum bolta alla leið í holu og betra skorið gildir á holunni.
- Tveir tvímenningar með forgjöf.
Leikið er með forgjöf í öllum viðureignum. Ekki er leyfilegt að taka þátt í höggleikskeppni eða skila hring inn til forgjafar á sama tíma og leikið er í liðakeppninni — þ.e. ekki má blanda saman leikformum. Leikmaður ræður af hvaða teig hann leikur og reiknast leikforgjöf hans út frá þeim teig.
Leikið er samkvæmt golfreglum R&A og almennum staðarreglum Leirdalsvallar. Að öðru leyti gilda almennar reglur GSÍ um Íslandsmót golfklúbba um það sem þessar reglur taka ekki á.
Stigakerfi: Hver leikur í riðlakeppninni gefur eitt stig og jafntefli gefur 0,5 stig. Tvö stigahæstu liðin í hverjum riðli fara áfram í 8 liða úrslit.
Tilfelli jafnra liða:
- Verði tvö lið jöfn að stigum ræður innbyrðis viðureign þeirra.
- Verði 3 eða fleiri lið jöfn í efstu sætum riðils og innbyrðisviðureignir geta ekki skorið úr um úrslit, ræður heildarfjöldi vinninga.
- Séu lið ennþá jöfn ræður hlutkesti.
Í úrslitakeppninni er sama leikform og í riðlakeppni — einn fjórleikur og tveir tvímenningar. Ef leikur endar jafnt er leikinn bráðabani: einn tvímenningur með forgjöf. Hvort lið tilnefnir einn leikmann til þess að leika bráðabana, sem hefst á 1. holu.
Tímamörk umferða
Sett eru tímamörk fyrir hverja umferð.
- Ekki er heimilt að hefja leik í riðlakeppninni á milli kl. 16:00 og 18:00 á virkum dögum.
- Leitast skal við af fremsta megni að allar viðureignir leiks tveggja liða séu leiknar samdægurs.
- Ef engin leið finnst til að leika allar viðureignir samdægurs skal dagsetja hverja þeirra innan þriggja daga tímabils og þeir rástímar gilda.
- Rástíma allra viðureigna umrædds leiks milli liða verður að ákveða áður en fyrsta viðureign hefst.
- Ef liðin komast ekki að samkomulagi um rástíma þá ákveður mótsstjórn tímann og þeir rástímar gilda.
Liðsskipan
Í hverju liði skulu vera að lágmarki 6 og að hámarki 8 leikmenn. Tilkynna skal skipan liðs með reiknaðri forgjöf og teigavali á þar til gerð eyðublöð og skila í proshop fyrir hvern leik.
Öllum formsatriðum skal vera lokið minnst 10 mínútum áður en fyrsta viðureign leiksins hefst. Eftir að lið hefur verið tilkynnt er óheimilt að breyta samsetningu liðs, eða röðun á viðureignum fyrir umrædda umferð.
Lið má ekki sjá liðsskipan mótherjanna fyrr en bæði lið hafa tilkynnt liðskipan sína.
Forgjöf keppenda
Hámarks grunnforgjöf hvers keppanda er 30.
Í tvímenningi er forgjöf mismunur á leikforgjöf keppenda.
Dæmi: Leikmaður A fær 12 í vallarforgjöf og leikmaður B fær 16. Mismunurinn er 4 og fær því leikmaður B forgjöf á 4 erfiðustu holur vallarins.
Í fjórleiknum leikur hver leikmaður skv. sinni forgjöf að frádreginni forgjöf forgjafarlægsta leikmannsins í hollinu.
Skil úrslita
Úrslitin skulu send á mótsstjóra strax eftir leik, undirrituð af liðsstjórum eða fulltrúum þeirra.
Ágreiningur
Komi upp ágreiningur um framkvæmd mótsins skal öllum athugasemdum beint til mótsstjórnar. Ákvarðanir og niðurstöður mótsstjórnar eru endanlegar.
Mótsstjórn:
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Ragnheiður Stephensen
- Bergsveinn Þórarinsson
- Úlfar Jónsson
Sjá einnig: keppnisdagatal · staða · leikir · úrslit.